Hugsa lögreglumenn?????

Ég get nú ekki orða bundist eftir að hafa hlustað á lýsingu á eftirför logreglunnar á gráu Yarisbifreiðinni sem stolið var meðan eigandinn var inni að borga fyrir bensínáfyllinguna!      Sex lögreglubílar og mótorhjól elta frávita mann sem ekur á allt að 160 km hraða áleiðis upp í Hvalfjörð.      Eltingaleiknum líkur með að lögreglubíll keyrir á fórnarlambið til að þvinga það út af veginum.     Yarisinn ónýtur og þjófurinn á slasaður  á sjúkrahúsi.     Þetta er ekki fyrsta slysið sem lögreglan veldur með heimskulegri eftirför á manni sem augljóslega er vitstola.     Ég minnist svipaðs eltingaleiks fyrir nokkrum árum sem endaði með dauða þriggja - þar af tveggja alsaklausra vegfarenda, vegna algers hugsunarleysis lögreglunnar.    Það er ekkert til sem réttlætir eða afsakar þessa aðferðarfræði  og það ætti að gefa öllum lögreglumönnunum sem þátt tóku - og lögreglustjóranum í Reykjavík áminningu og senda þá í endurhæfingu og kenna þeim að hugsa!

 Það er ekki allt fengið með að góma þjófinn - stundum á að bíða betra færis!

Þetta skekur hug minn því hér á ég um sárt að binda!

Ragnar Eiríksson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Linda Óskarsdóttir

Hvað átti lögreglan að gera Ragnar?  Bíða eftir því að maðurinn/bílþjófurinn sem greinilega var undir áhrifum efna, klessti á saklaust fólk og dræpi það?

Svona eftirför er ekki heimskuleg. Hún er skiljanleg og ekkert annað í stöðunni en að stoppa manninn!!!

Katrín Linda Óskarsdóttir, 19.7.2009 kl. 23:27

2 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Hér gildir það trúlega að það er ekki hægt að gera ekkert!

Flosi Kristjánsson, 19.7.2009 kl. 23:44

3 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Sammála Katrínu, hvað var eigandinn að hugsa. Að vera svo vinsamlegur að skilja eftir lykla og veski í bíl og "kalla" á þjófa. Kaskóið nær a.m.k. ekki yfir svona tjón fyrir eigandann, en hefði þurft að borga tjón sem hann veldur.

Guðmundur Jónsson, 19.7.2009 kl. 23:45

4 identicon

Ragnar gerðu mér greið hlauptu á vegg.

Þorsteinn Ágústsson (IP-tala skráð) 20.7.2009 kl. 00:07

5 identicon

Alltaf gáfulegt að kenna fórnarlömbum glæpa um afbrotin, Guðmundur.

Halldóra (IP-tala skráð) 20.7.2009 kl. 01:38

6 Smámynd: Ragnar Eiríksson

Maðurinn kunni augljóslega að keyra - keyrði úr Reykjavík og fyrir allan Hvalfjörðinn - hann hafði ekki valdið neinum slysum en blá ljós og sírennur sefa ekki óttann eða róa hugann, þvert á móti!       Eftirförina átti að stoppa strax í mynni Hvalfjarðar eða fyrr og gefa manninum tækifæri til að hugsa!      Þarna eru fleiri undankomuleiðir og nú var maðurinn þekktur - eigandi bílsins sagðist þekkja hann hvar sem væri?      Slysið og eyðilegging bílsins skrifast alfarið á lögregluna.      

Fyrir 13 árum skeði nákvæmlega það sama milli Hveragerðis og Selfoss - maður eltur úr Reykjavík til Selfoss á allt að 200 km hraða - hann náði að snúa við á Selfossi og ók svo á öfugum vegarhelmingi og rakst á bíl - allir dóu þar af einn bróðir minn.       Það var lögreglunni að þakka og því að þeir hugsa ekki - eru bara í bílaleik!

Þorsteinn minn - ég svara ekki skætingi þínum, hann er þér ekki til sóma.

Flosi - þetta er einmitt staðan hans Geirs Haarde - "það er best að gera ekki neitt!" .

Það væri reyndar óskandi að yfirvöld, þar með talin logregluyfirvöld sýndu sama ákafa við að handsama alla þá þjófa og glæpamenn sem sett hafa þjóðina á hliðin - en þeir hafa sennilega hvítan flibba og bindi og engan hund  hund með sér .

Katrín - maðurinn hafði keyrt um Reykjavík í marga klukkutíma án óhappa - var goðgá að fara varlega að honum!     Þeir fara varlega að hvítflibbaþjófunum!   Þess vegna var eftirförin, nema í byrjun heimskuleg og skaðleg sérstaklega eftir að úr þéttbýli var komið.

Þessi atburður hefur kostað mig andvökunótt og rifjað upp minningar sem ég á einna verstar - að fá fréttirnar og myndir gegnum sjónvarpið og þekkja bílflakið.

Ragnar Eiríksson, 20.7.2009 kl. 05:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ragnar Eiríksson

Höfundur

Ragnar Eiríksson
Ragnar Eiríksson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband