21.9.2009 | 13:20
Gefa skít í Hafró!
Fréttirnar af mjög aukinni fiskigengd í Barentshafi þrátt fyrir að allar reglur frá norskum og rússneskum systurstofnunum hafi verið brotnar mörg undanfarin ár ættu að vekja ráðamenn hér af dvalanum - við þurfum að veiða meira og ráðleggingar HAFRÓ eru jafnvitlausar ef ekki vitlausari en hjá Norskum og Rússneskum kollegum þeirra.
Nú á bara að auka kvótann um 50 - 100 %, selja veiðileyfi á vægu verði(t.d.50-70 kr/kg) á frjálsum markaði og með takmörkunum. Sennilega ætti annað hvort að banna veiðar smábáta í janúar- mars eða banna þeim að fara út fyrir 3 sjómílur!
Það getur ekki verið rétt að yfirvernda fiskinn en ana áfram með virkjana- og álversframkvæmdir sem eru alla vega ekki endurkræfar - með því er verið að selja okkur í ánauð.
Peningana sem inn koma á að nota til að endurkaupa kvótann af hinum svokölluðu kvótaeigendum svo þeir standi ekki eftir slippir og snauðir - AUMINGJARNIR!
Drífa svo í að innkalla kvótann og banna harðlega alla veðsetningu á honum!!
Ragnar
Bloggfærslur 21. september 2009
Um bloggið
Ragnar Eiríksson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar